09.03.2008 15:25:04 / Stulfius
Helgrýtis mennirnir í útlöndum! Ráðast svona á blásaklaust Hannnesið! Hvað hef ég gert þeim? Ansvítans uppákoma. Klám-og kynlífstilboð og gyllinæðartilboð um limlengingar og herðingar.
Hannnes varð fyrir árás tölvuþrjóta í nótt að staðartíma. Ég ritlaði lítillega um FSH sýninguna sem ég fór á í gær og það fannst vírusþrjótunum greinilega alveg tilvalið til að sneisafylla kommentakerfið hjá mér af tenglum og krækjum inná sorasíður.
Ég er nú engin rauðsokka og berst líklega seint gegn klámi. En þetta er svona mátulega sniðugt á síðunni minni! Ég eyddi þessu öllu og endaði með því að finna eki færsluna mína aftur. Frábært.
Allavega. Ég fór með börnum og bróður á Kardemommubæinn í leikhúsinu í gær. P&Þ setti þetta upp og naut aðstoðar nokkurra jarla úr Borgarhólsskóla. Þetta var helvíta skemmtileg sýning. Leikararnir fínir og sviðsmyndin snilldarleg. Bara heilt yfir til fyrirmyndar. Einhverjir tæknilegir vankantar voru þarna (bilað ljósaborð) en krakkarnir leystu þetta eins og atvinnumenn og krakkarnir í salnum urðu ekki fyrir svo miklum truflunum vegna þessa.
Verst þótti mér um páfagaukabúrið mitt gamla. Já það var notað á ný í Kardemommubænum og þar á undan var það í herberginu mínu og hýsti skötuhjúin Gúnda og Lindu (ég átti Gúnda en Hilli bróðir skírði frekjubreðjuna sína Lindu, í höfuðið á Lindu Pjé!). Linda einmitt var ógeðslega mikil bredda og borðaði stundum næstum því Gúnda greyið. Hún beit af honum stélið minnir mig og hann flaug bara í hringi alveg gjörsamlega stjórnlaus eftir þessa fólskulegu árás! Linda hálfviti.
Sýningin var sumsé alveg skínandi skemmtileg og ljóst að margir þarna eiga eftir að gera það gott á sviðinu. Frábært hjá P&Þ og gaman að sjá gamla félagið sitt blómstr sem aldrei fyrr.
Jæja. Best að kíkja á Meistaradeild VÍS í hestaíþróttum.....RÚV! hvað er að??? Nei nú hringi ég í Jens.
Auðvitað var maðurinn Pálmi R. Pálmason. Geirfuglinn sjálfur, Ingvar Björn átti kollgátuna. Hann á inni gott grábjarnarknús frá mér við einn góðan veðurdag. Það er hinsvegar misskilningur að ég sé alltaf að gera grín að honum Pálma! Ég geri það yfirleitt ekki neitt! Einu sinni kannski þegar við vorum í rjúpum. En þá bauð hann algjörlega uppá það! Pálmi minn þú ert fínn.
Vísbending 1
Maðurinn er skemmtilegur
»