Húllumhæ á Hannnesi

Hvað er títt af Hannnesingum?

30.10.2007 09:07:55 / Stulfius

Það sem enginn Cher

Ég ól manninn í borg óttans um helgina. Sat þar prestanámskeið allan liðlangan daginn og er alveg dauðuppgefinn eftir það. Erfiðir þessir prestar, svo eru þeir svo misjafnlega pirraðir útí nýju þýðinguna!

Ég fékk inni hjá Hilla litla, Baldri litla og Sneiðinni og gisti í Arnars holu þar sem hann er ekki á landinu. Þetta er prýðilegt heimilishald hjá köllunum. Allt voða afslappað og samhugur, samkennd og væntumþykja allsráðandi. Ég sá þvottahús í miklum blóma með ofboði af óhreinataui. Baldri brá fyrir allsberum að snæðingi. Fleira var þarna allsbert sem tekur ekki að nefna. Sneiðin eldaði  á ævintýralegan hátt eins og vindurinn og klykkti út með Eldfærunum en sterkari gúllasrétt hefur enginn maður smakkað! Góður samt, takk fyrir mig enn og aftur Addi minn.

HnoddaBjarni renndi yfir nýóútkominn disk þeirra Túpílaka fyrir okkur bræður á föstudagskvöldinu. Ég hvet alla til að kaupa sér eintak. Þetta er stórbrotinn gripur og enginn svikinn af þesslags kaupum. Hlógum dátt og hefðum hlegið dáttar ef ég hefði ekki verið með þindarbólgu úr þreytu.

Aji verð að fara að gera eitthvað. Hitti fleira fólk og segi líklega betur frá þessari ferð bara seinna, eða ekki. Líklega ekki. Sá mína menn tapa fyrir Arsenal á sunnudaginn. Það var spennandi. Góð lið bæði tvö og góður leikur maður minn.

Stebbi Friðrik æsku-og uppeldisfélagi minn úr Gólan er auðvitað maðurinn! Snillingurinn atarna er svo örvhentur að leitun er að öðru eins og hann á afmæli heilum tveim dögum á undan mér. Hann var s.s. enn rakur þegar ég fæddist. Við höfum oft verið rakir saman í seinni tíð svo þetta er allt í lagi. Havartinn átti kollgátuna og vinnur sér inn plötuna með Rangárbræðrum, 10 tíma ljósakort hjá Rós í Sólbrekkunni og 4 bls. ritgerð um Napóleon Bonaparte sem unnin var á aðventu 1994.

Lifið heil.

Vísbending 1

Nafni pabba mannsins tók oft að miklu leyti þátt í ferðakostnaði útskriftarnema FSH á ofanverðri 20.öldinni.


» 7 hafa sagt sína skoðun

17.10.2007 22:29:24 / Stulfius

Hvenær drepur maður mann?

Jæja þetta gengur náttúrulega ekki lengur. Hér ríkir andleysið eitt þó krossgötur séu að baki. Krossgötur hváið þið! Ég lá á krossgötum og beygði af. Skynsamlega þó. Flest er betra eftir það.

Nú mætti segja mér að rjúpnatímabilið ætti að vera hafið. Reyndar er í fínu lagi að byrja það ekki fyrr en 1.nóv. En að láta sér detta í hug að enda það 30.nóv. er álíka gáfuleg ákvörðun eins og að míga útum bílglugga á 100km hraða, spenntur í öryggisbelti. Sá eina hvíta í dag og hún vakti hjá mér himneskan frið, hamingju og jafnvel eilitla frygð. Já ætli ég sé ekki hreinlega illa haldinn af Ptarmigan fetish-inu alræmda.

Ég slakaði s.s. á í náminu (sem var að gera mig að taugahrúgu og samviskubitssvartholi) og held bara áfram ótrauður eftir áramót. Greip í þjálfun í staðinn. Það er ágætt.

Fréttir hafa fokið um og gegnum eyru mín undanfarið. Fylgdist reyndar aðeins með meirihlutaflugeldasýningunni í viku líðanda. Það var ákveðið spark í grámóálóttan hversdagsleikann þar sem ég hef ofboðslega þörf fyrir uppábrot, jarðskjálfta og aðra ófyrirsjáanlega hluti í mitt líf til heilsubjargar.

Henry Kissinger, öðru nafni Ási Gísla, mætti á svæðið um daginn og við lögðumst fyrir gásir í Kelduhverfinu. Náðum bara þónokkrum bing, reyndar með fulltingi Guðna Braga seinni daginn. Svona lagað er gaman og gott og skemmtilegt og hollt og yndislegt. Ræddum margt og merkilegt, jafnt syndugt sem syndlaust þarna við túnið og skemmtum okkur og mývörgum í fjölmarga klukkutíma. Á þessu lifir maður framyndir jólaföstu. Styttist í Hrekkjavöku, best að taka höfuðáfestinn til og gera regnfötin klár.

Ég er dómkirkjuprestur.

Ég er svona rétt núna að ná að sofna án þess að hugsa um þennan voveiflega leikandskota sem fram fór í september á Húsavíkurvelli. Held hreinlega að sálartetrið bíði þess ekki bætur um ókomna tíð. Fari það og veri.

Jæja um leið og bótar- og betrunarloforðum um örara ritl rignir yfir þig lesandi góður þá snarhendi ég fram vísbendingu tvö þar sem enginn hefur kollgátuna átt hingað til. Hafa samt margar flennigóðar ágiskanir litið dagsins ljós.

Vísbending 2

Maðurinn er ákaflega litlu eldri en ég


» 5 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  25  Alls: 103716
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Leitarbox