Húllumhæ á Hannnesi

Hvað er títt af Hannnesingum?

21.11.2006 17:14:41 / Stulfius

Enn af þema...

Jájá það eru auðvitað þemadagar í skólanum. Þetta orð sem ég hafði nú einu sinni lýst yfir hroðvættar andstyggð á skýtur upp kollinum reglulega og já! Eiginlega bara of reglulega. Nemendur voru að velta fyrir sér framtíð í skólastarfi í dag. Plussuðum gervallt í álpappír (alltaf skal álpappír tákna framtíð og geimdót) svo voru menn með ýmsar skrítnar hugmyndir um þetta allt saman. Menn voru sumsé að búa til skólastofu framtíðarinnar í hópnum sem ég og Halla Tryggva afmælisbarn (til hamingju!) vorum með á okkar könnu. Það gekk svona líka.

Skólinn á sumsé afmæli á morgun. Hann er 110 ára kallinn og guð minn góður hvað hann heldur sér kalliiiiiinnnn!!! Allir að mæta! Sveppalandi og villiberjaragú á boðstólum.

Annars svipað. Enn tekst manni að hálkafna í einhverjum verkefnum og skilum á síðustu stundu. Kannski maður fari bara að hætta þessu skólabrasi og reyni að rétta úr sér!

Rjúpur..... langt síðan. Hef ekki haft mig af stað aftur eftir að Böbbsi litli tók "litlu saklausu-fugla ræðuna sína". Þarf að kíkja í púðrið með Funa og fleiri góðum sem fyrst. Þetta gefur svo af sér og er svo opið og skemmtilegt.

Sófía um helgina, sýningar um helgina, Karíus og Baktus um helgina, verkefni um helgina, verkefni um helgina, Víga-Glúmur og sinnepsþambararnir um helgina. Allt að gerast um helgina. Sjáumst þá!

Vísbending 1
Maðurinn gengur undir afar óvenjulega löngu viðurnefni

» 15 hafa sagt sína skoðun

18.11.2006 22:03:20 / Stulfius

Hamst

Andskotinn með úldnum skít....á þér kjaftinn stífli!

Bólu Hjálmar reddar mér enn og aftur....Hann kann þetta strákurinn.

Liverpool! Græjuðu Midddddddlessssbrorohhhgg í dag svona fínt. Ekki morð um það meir.

Frumsýning í gær. Höddi höfundur snillingur. Leikarar snillingar (Brói jájá snillingur maður minn) allt snilld. Allir að mæta.

Það er best að koma með játningna miklu fljótlega....best að hún fái að fljóta hér inn fyrst.

Vísbending 3
Maðurinn hefur hrækt í andlitið á öðrum manni


ps.nú? var svarið komið?

Já það er Ási. Maðurinn er að sjálfsögðu Ási minn Gilla graðason.

» 2 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 18:23:20 / Stulfius

Koppafeitis elding

Svona er þetta bara. Ósmurt í gær á móti vesalingunum og vælukjóunum í Arsenal. Hversu hrikalega óþolandi er það? Tap á móti manure um daginn var verðskuldað og bara allt í lagi því þeir eru með gott lið sem vælir sjaldan (nema auðvitað Fergi gamli þegar illa gengur....sjaldgæft í ár). Þoli ekki að tapa á móti svona liði eins og Arsenal sem vælir bara og brjálast þegar illa gengur (líka sjaldgæft en hefur þó gætt hjá liðinu í ár). Framkvæmdastjórinn brjálaður þegar Pardew fagnaði fyrir framan hann í tapi Arse á móti West Ham. Óþolandi algjörlega með öllu en kannski ekki skrítið. Arsenal betri í gær þó hvorugt liðið væri að sýna einhverja meistaratakta. Við slátrum þessum hænum bara á Anfield í næsta stríði.

Annars er hér svoleiðis galhoppandi snarvitlaust veður að maður má varla spönn frá rassi mæla. Maður sér ekkert fyrir helvíti og viðbjóði og svona bílaþurfalingar eins og ég þurfa að blóta til himins og öskra í hljóði.

Árni Johnsen rúllar öllum upp og fer í fínu formi inná þing í kosningunum í vor. Ætlaði að horfa á fína mynd um Robin Williams í vélmennabúning á laugardagskvöldið en það sást ekki nema rétt helmingurinn af myndinni sökum gegndarlausra frétt af prófkjöri á suðvesturhorninu. Þetta er svo ótrúlegt. Eins og fólk geti ekki beðið eins og eina mynd eða bara kveikt á útvarpinu, netinu eða skutlast á textavarpið ef það er að deyja úr prófkjarafréttakvalalosta og þorsta. Í fyrstu hlunkaðist textinn yfir hálfan skjáinn og var þar í góðan tíma. Einhver Einhversson í 7. sæti samfylkingarkruðeríinu var á miðjum skjánum, neðst í upplýsingahrúgunni sem skyggði á myndina. Skammist ykkar sjónvarpslið! Það vantaði bara að þessar þulur (já þulur á 21.öldinni) kæmu blaðskellandi inní beina útsendingu (hlé gert á myndinni) og myndu lesa upp nýjustu tölur úr prófkjöri í Rassaboru-kjördæmi suður. Svei því alla leið til akureyrar.

Leika á föstudaginn í Reykjadal. Æfa hvenær? Sennilega verður met slegið í æfingafjölda fyrir þessa sýningu þar sem við höfum lítið sem ekkert getað æft fram að þessu og nú hamla vindar og viðrekstur hins vonda því að æft verði í kvöld og jafnvel á morgun. Hvað um það, þetta verður fjör.

Allir kátir eftir prófkjörinu og þakka stuðninginn. Bíð enn eftir hetjunni sem rís uppá afturlappirnar og blastar þessum andskotans heilaleysingjum sem láta smala sér á kjörstað til að kjósa einhverja froðuheila sem hafa ekkert betra að gera en taka þátt í prófkjörsbaráttu. Góða fólkið sem ætti að stjórna þessu batteríi er held ég bara upptekið við vinnu að það getur ekki verið að standa í svona peningaaustri í að læra að brosa, ganga og bjóða góðan daginn fyrir framan alþjóð á prenti og á skjánum.

Jæja best að herja á verkefnið sem hefur herjað á mig og mitt sálartetur með voveiflegum afleiðingum í heilabúi mínu og er farið að hvetja mig til voðaverka á borð við morð, misþyrmingar, bakstur og fatafækkunar í fjölmenni.

Þakka þeim sem studdu mig í athugasemdum við síðustu færslu er ég glímdi við sullaveikibandormaveikina Aldauða. Ég er farinn að halda að Grani hafi hitt naglann á höfuðið. Veiðimálastjóri sendi mér veikina sem hreina og klára refsingu. Við sjáum nú hve hart hann hefur beitt sínum refsivendi á aðra sem hafa til sömu saka unnið...þ.e. þeir geta ekki unnið;)

Vísbending 2
Maðurinn hefur líklega oftast lent í áflogum af þeim sem ég þekki

» 6 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  1  Alls: 103692
Dagatal
mars - 2010
S M Þ M F F L
123456
78910111213
14151617181920
21222324252627
28293031
FyrriNæsti
Leitarbox