Ég er nú engin skepna og ég lítilsvirði fólk yfirleitt ekki nema í algjörri neyð eða gríni.
Samt finnst mér eftirfarandi myndband of gott til að vera satt. Aumingjans manneskjan. Var virkilega ekkert hægt að gera? Var virkilega ekki möguleiki að komast þokkalega upprétt frá þessu? Þetta minnir mig hreinlega á sviðsmartraðirnar mínar. Allt stopp og allir að glápa í forundran yfir þrúgandi þögninni.
http://www.althingi.is/altext/hlusta.php?raeda=rad20080416T154338&horfa=1
Ég vil biðja hana Guðnýju afsökunar á því að hafa vakið enn frekari athygli á þessu. En Baggalútur og fleiri hafa nú þegar birt þetta á síðum sínum og tölvupóstar hafa flogið heimshorna milli með linknum í dag. Svona er þetta bara.
Annað er líklega verra. Margan á ég góðan Arsenal vininn. En ég bara stenst ekki mátið eftir að hafa séð svo stórbrotna mynd á síðunni hjá meistara Henry Birgi. Ég bara verð að fá að setja þessa mynd á síðuna mína líka. Ástæðan er einföld. Ég er búinn að sitja undir nógu miklum bolahægðum um fótbolta sem Liverpool maður til þess að sleppa því að skjóta á Arsenal menn ,sem enn eina ferðina misstu móðinn og glopruðu frá sér öllum dollum.

Þessi verður að fá að fljóta með í kjölfarið:

Annars er allt bærilegt að frétta af norðurvígstöðvunum. Við Ási fjármálaspekingur ætlum að veislustýrast í þrítugsafmæli Agga og bibba á laugardagskvöldið. Það verður örugglega fjör. Ég var að vona að Ási gripi í ódauðlegt hlutverk sitt sem Lárentsíus sýslumaður úr Skugga-Sveini og færi mikinn t.d. gæti hann tekið ógleymanlegt atriðið þegar Sveinki hafði rænt hann og hann barmar sér ógurlega yfir horfnum silfurskeiðum, hringum og peningunum, peningunum! Og heimtar svo auðvitað lakara ölið því ekki átti hann skilið betra ölið. Nú svo kemur blessunin hún Manga inn og veltir fyrir sér „hver ósköpin skyldu ganga á á Gili?“ Þvílík dæmalaus snilld hjá Matthíasi! Unaðslegt leikrit sem hefur allt
Ég verð bara Sigurður í Dal áfram og við tölum um tíðindi í nokkra þætti áður en Geir og Grani koma inn með trúðasýninguna.
Þetta verður allavega gaman!
Ég kíkti í leikhúsið í gærkveldi þar sem LH var með kvöldvöku mikla undir yfirskriftinni Einu sinni var. Það var svona líka ljómandi gaman að sjá atriði tekin úr fjórum verkum sem sýnd hafa verið á fjölum gamla Samkomuhússins í gegnum tíðina. Síldin, Gúmmí-Tarzan, Salka Valka og já...Skugga-Sveinn. Skemmtileg, stutt kvöldskemmtun sem mætti alveg sjást oftar hjá LH.
Ég fór líka á skólasamkomu Borgarhólsskóla í gærmorgun. Þar var hnátan mín að syngja ásamt bekkjarfélögum sínum í 1.bekk. Það var nokkuð gaman. Skólakórinn söng, það var ágætt. Bróðir minn dansaði eins og berserkur við fjöruga afríska Djembe-tónlist, það var mjög gaman. Svo var þarna söngleikur sem 7.bekkur sýndi. Jósep heitir þetta mikla verk. Það var ekki gaman fannst mér. Ekki má misskilja mig núna því ég er alls ekki að segja að 7.bekkurinn hafi gert eitthvað illa. Ekki fannst mér heldur leikstjórinn (Gunna Stína) koma neitt sérstaklega illa frá þessu (fékk tæpar tvær vikur í þetta) og hvað Lisa tónlistarstjóri gerði er ég ekki dómbær á. Hinsvegar er staðan sú að ég veit ekkert um hvað þetta var. Já það má alveg skrifa það á vankunnáttu mína í biblíufræðunum en samt. Ég hef óljósan grun um að Jósep hafi átt slatta af bræðrum, lent uppá kant við ríkjandi yfirvald (og sofið hjá konu hans) og ráðið drauma. Þetta er nákvæmlega það sem ég náði! Ég er bara ekki stilltur inná þessa línu og því er ég kannski ekki nægilega móttækilegur. Sjálfsagt finnst öðrum þetta skemmtilegt en ég hlýt bara að vera svona mikill hrímþurs þegar kemur að svona söngleikjum.
Sólin skín og vorið er komið og grundirnar gróa og allt það. Liverpool ætla að fara að taka á því í CL og ég er orðinn stressaður. Jafnvel stressaðri en fyrir leikjum mfl. kvenna sem keppa nú á sunnudag gegn Hetti og laugardaginn eftir það gegn Tindastóli í Lengjubikarnum. Það er spennandi og gaman og hvet ég alla til að leggja leið sína á Egilsstaði og í Bogann viku seinna til að styðja dömurnar.
Vísbending 3
Maðurinn heldur með liði sem fær enga dollu þetta tímabilið.